Umferðarslys
Ef þú lendir í umferðarslysi getur þú átt rétt á bótum vegna líkamstjóns, hvort sem þú varst ökumaður, farþegi, gangandi eða hjólandi vegfarandi. Þetta getur átt við um árekstra, aftanákeyrslur, mótorhjólaslys og önnur slys þar sem ökutæki kemur við sögu.
Bótaréttur vegna líkamstjóns getur verið fyrir hendi hvort sem þú varst í rétti eða órétti. Skyldutryggingar ökutækja taka almennt til líkamstjóns ökumanns og farþega sem og annarra sem slasast af völdum ökutækisins.

Bótaréttur getur verið til staðar eftir umferðarslys. Bætur geta meðal annars falið í sér greiðslur vegna tímabundins tekjutaps, þjáninga, varanlegs miska, varanlegrar fjárhagslegrar örorku og útlagðs sjúkrakostnaðar.
Réttur til bóta fer eftir aðstæðum í hverju máli. Neysla áfengis eða annarra vímuefna og alvarleg umferðarlagabrot geta til dæmis haft áhrif á bótarétt og í ákveðnum tilvikum leitt til skerðingar eða brottfalls bóta.
Hvað á ég að gera eftir umferðarslys?
Mikilvægt er að leita til læknis eins fljótt og kostur er ef þú finnur fyrir einkennum eftir slysið. Ef langur tími líður frá slysi þar til leitað er læknis getur orðið erfitt að sýna fram á tengsl áverka eða einkenna við slysið.
Einnig er mikilvægt að slysið sé tilkynnt til réttra aðila og að gögn sem tengjast slysinu, meðferð og kostnaði, séu varðveitt. Fortis getur farið yfir málið með þér, aðstoðað við tilkynningar og séð um samskipti við tryggingafélög og aðra bótaskylda aðila.
Umferðarslys
38 ára / Hálsáverki
Leitað til Fortis þremur mánuðum eftir slysið. Fyrsta verkefni Fortis var að aðstoða við að tilkynna slysið til tryggingafélags bifreiðarinnar og vinnuveitanda (viðkomandi var tryggður allan sólarhringinn samkvæmt kjarasamningi). Fortis sá um öll samskipti við bótaskylda aðila, hlutaðist til um nauðsynlega gagnaöflun og sá til að útlagður sjúkrakostnaður yrði endurgreiddur. Átta mánuðum eftir fyrsta viðtal lágu öll gögn fyrir og Fortis fékk hlutlausa matsmenn til að meta afleiðingar slyssins.
Matsniðurstaða lá fyrir átta vikum eftir matsfund: 8 stiga varanlegur miski og 8% varanleg örorka. Samanlagðar bætur námu u.þ.b. 9.700.000 kr.
27 ára / Hálsáverki
Leitað til Fortis níu mánuðum eftir slysið. Fyrsta verkefni Fortis var að aðstoða við að tilkynna slysið til tryggingafélags bifreiðar. Fortis sá um öll samskipti við tryggingafélagið og hlutaðist til um nauðsynlega gagnaöflun. Fimm mánuðum eftir fyrsta viðtal lágu öll gögn fyrir og Fortis fékk hlutlausa matsmenn til að meta afleiðingar slyssins.
Matsniðurstaða lá fyrir átta vikum eftir matsfund: 5 stiga varanlegur miski og 5% varanleg örorka. Bætur námu u.þ.b. 5.300.000 kr.
Við biðjum þig að hafa í huga að hvert mál er einstakt og það eru margar breytur sem hafa áhrif á bótafjárhæðina, t.d. sú trygging sem á í hlut, aldur og matsniðurstaða. Þegar um uppgjör á grundvelli skaðabótalaga er að ræða skipta meðaltekjur fyrir slys einnig máli.





