Slysabætur
Slys geta haft víðtæk áhrif á heilsu, atvinnu og fjárhag. Sá sem lendir í slysi kann að eiga rétt á bótum, hvort sem um er að ræða umferðarslys, vinnuslys, slys á sjó, slys í frítíma eða önnur tilvik þar sem tryggingar eða bótaréttur kunna að vera fyrir hendi.
Réttur til bóta fer eftir aðstæðum hverju sinni. Það getur skipt máli hvernig slysið gerðist, hvaða tryggingar gilda, hvort sem slys varð við vinnu eða í umferðinni og hvaða afleiðingar það hafði fyrir þann sem slasaðist. Markmið okkar er að hjálpa fólki að átta sig á réttarstöðu sinni og sækja þær bætur sem það kann að eiga rétt á. Við sjáum um ferlið á meðan þú hugar að þér og þínum.
Umferðarslys
Umferðarslys geta varðað ökumenn, farþega, gangandi vegfarendur og hjólandi. Bótaréttur getur komið til vegna áreksturs, aftanákeyrslu og annarra slysa þar sem ökutæki kemur við sögu. Ef þú lentir í umferðarslysi geturðu átt rétt á bótum, hvort sem þú varst í rétti eða órétti.

Vinnuslys
Vinnuslys af ýmsu tagi geta leitt til tjóns, eins og við hefðbundin störf, vegna notkunar véla og tækja, falls, hálku eða annarra aðstæðna á vinnustað. Einnig geta slys á beinni leið til eða frá vinnu í sumum tilvikum talist vinnuslys.

Vinnuslys á sjó
Slys við störf á sjó hafa ákveðna sérstöðu þar sem réttarstaða sjómanna er að mörgu leyti frábrugðin réttarstöðu annarra launþega. Mikilvægt er að meta slík mál sérstaklega með hliðsjón af reglum sem um þau gilda.

Slys í frítíma
Slys í frítíma geta t.d. átt sér stað við íþróttaiðkun, útivist, ferðalög, heimilisstörf eða aðrar daglegar athafnir. Í slíkum málum skipta tryggingaskilmálar oft miklu máli og réttur til bóta ræðst af því hvaða vernd er til staðar hverju sinni, t.d. á grundvelli heimilistryggingar, kreditkortatryggingar eða annarra persónutrygginga.

Önnur slys
Sum slys teljast ekki skýrlega umferðarslys, vinnuslys eða frítímaslys. Samt getur bótaréttur verið fyrir hendi, eftir atvikum vegna sérstakra trygginga eða annarra reglna sem eiga við um tjónið. Skoða þarf hvert mál fyrir sig.

Hvað er mikilvægt að gera eftir slys?
Gott er að leita sem fyrst læknis, skrá atvik með sem nákvæmustum hætti og varðveita öll gögn sem kunna að skipta máli, svo sem vottorð, samskipti, tilkynningar og upplýsingar um tekjumissi eða annan kostnað. Slík gögn geta haft verulega þýðingu þegar metið er hvort bótaréttur sé til staðar.
Fáðu mat á því hvort bótaréttur kunni að vera fyrir hendi
Ef þú hefur lent í slysi og ert óviss um rétt þinn getur verið skynsamlegt að fá málið metið. Réttur til bóta ræðst oft af atriðum sem ekki eru augljós í fyrstu og því getur skipt máli að fara snemma yfir stöðuna með aðstoð sérfræðinga.

