Önnur slys
Ekki teljast öll slys sem umferðarslys, vinnuslys eða slys í frítíma. Þótt slysið falli ekki skýrt í einn þessara flokka getur samt verið réttur til bóta, eftir því hvernig slysið átti sér stað og hvaða tryggingar eða aðrar reglur eiga við.
Einnig geta sérstakar tryggingar veitt rétt til bóta vegna fleiri atvika en slysa eingöngu, til dæmis sjúkratryggingar eða örorkutryggingar. Sjúkratryggingar taka til heilsutjóns og veikinda sem stafa af sjúkdómum. Örorkutryggingar eru til að mæta tekjutapi og fjárhagslegum afleiðingum þess að missa að fullu eða hluta getu til að vinna vegna heilsutjóns eftir slys eða vegna sjúkdóma. Því þarf oft að skoða hvert mál og þá tryggingavernd sem er til staðar sérstaklega.

Skoða þarf réttarstöðuna sérstaklega í hverjgu tilviki fyrir sig og fara vel yfir skilmála þeirra trygginga sem eru fyrir hendi. Það getur skipt máli um hvernig tjón er að ræða sem og hvernig slysið átti sér stað, hvar það gerðist og hvaða tryggingar viðkomandi hefur.
Í sumum tilvikum getur réttur til bóta byggst á ábyrgð annars aðila en í öðrum á tryggingu sem tjónþoli hefur sjálfur keypt eða nýtur samkvæmt samningi.





