Slys í frítíma
Rannstu í hálku þegar þú varst úti að hlaupa eða dastu af hestbaki? Ef þú slasast í frítíma getur þú átt rétt á bótum úr slysatryggingu. Frítímaslysatrygging er oftast innifalin í heimilis- og fjölskyldutryggingum en einnig getur bótaréttur verið til staðar samkvæmt öðrum tryggingum.
Hvaða rétt þú átt fer meðal annars eftir því hvaða tryggingar eru í gildi og skilmálum þeirra. Því er mikilvægt að kanna tryggingaverndina vel í hverju tilviki.

Í sumum kjarasamningum er gert ráð fyrir að vinnuveitandi kaupi slysatryggingu vegna slysa í frítíma fyrir starfsfólk sitt. Þetta á oft við um starfsfólk ríkisins og sveitarfélaga. Hafir þú keypt almenna slysatryggingu tekur hún til frítímaslysa jafnt sem vinnuslysa.
Slysatrygging almannatrygginga greiðir bætur vegna slysa við heimilisstörf. Til þess að hún sé í gildi þarft þú að hafa valið hana á skattframtali þínu.
Ef einhver annar ber ábyrgð á slysinu, beint eða óbeint, getur einnig verið bótaréttur úr ábyrgðartryggingu. Það leiðir yfirleitt til umfangsmeiri bótaréttar.
Fyrirvaralaus líkamsárás getur flokkast sem slys í frítíma.
Mikilvægt að tilkynna slys í frítíma
Mikilvægt er að tilkynna slysið sem fyrst til allra bótaskyldra aðila svo bótaréttur glatist ekki. Fortis getur farið yfir hvaða tryggingar kunna að eiga við, metið stöðuna og aðstoðað við að koma tilkynningum til réttra aðila.
Slys í frítíma
38 ára / Hnéáverki
Leitað til Fortis tveimur vikum eftir slysið. Fyrsta verkefni Fortis var að aðstoða við að tilkynna slysið bæði vegna frítímaslysatryggingar og slysatryggingar vinnuveitanda (viðkomandi var tryggður allan sólarhringinn samkvæmt kjarasamningi). Fortis sá um öll samskipti við bótaskylda aðila og hlutaðist til um nauðsynlega gagnaöflun. Tæpu ári eftir fyrsta viðtal lágu öll gögn fyrir og við fengum hlutlausan matsmann til að meta afleiðingar slyssins.
Matsniðurstaða lá fyrir sex vikum eftir matsfund: 9% læknisfræðileg örorka/varanlegur miski. Samanlagðar bætur námu u.þ.b. 2.800.000 kr.
58 ára / Upphandleggsbrot
Leitað til Fortis ellefu mánuðum eftir slysið. Fyrsta verkefni Fortis var að aðstoða við að tilkynna slysið bæði vegna frítímaslysatryggingar og slysatryggingar vinnuveitanda (viðkomandi var tryggður allan sólarhringinn samkvæmt kjarasamningi). Fortis sá um öll samskipti við bótaskylda aðila, hlutaðist til um nauðsynlega gagnaöflun og sá til þess að útlagður sjúkrakostnaður yrði endurgreiddur. Hálfu ári eftir fyrsta viðtal lágu öll gögn fyrir og við fengum hlutlausan matsmann til að meta afleiðingar slyssins.
Matsniðurstaða lá fyrir átta vikum eftir matsfund: 5% læknisfræðileg örorka/varanlegur miski. Samanlagðar bætur námu u.þ.b. 850.000 kr.
Við biðjum þig að hafa í huga að hvert mál er einstakt og það eru margar breytur sem hafa áhrif á bótafjárhæðina, t.d. sú trygging sem á í hlut, aldur og matsniðurstaða. Þegar um uppgjör á grundvelli skaðabótalaga er að ræða skipta meðaltekjur fyrir slys einnig máli.





