Vinnuslys
Ef þú slasast við vinnu, eða á beinni leið til eða frá vinnu, getur stofnast réttur til bóta úr kjarasamningsbundinni slysatryggingu launþega og slysatryggingu almannatrygginga. Rétturinn er óháður því hver á sök á slysinu.
Vinnuslys geta orðið með ýmsum hætti. Sum störf eru hættulegri en önnur, til dæmis vegna notkunar véla og tækja, en einnig eru algeng slys vegna falls, hálku eða bleytu á vinnustað.

Réttur til bóta getur verið til staðar hjá tryggingafélagi vinnuveitanda sem og Sjúkratryggingum Íslands. Ásetningur eða stórkostlegt gáleysi getur þó valdið brottfalli eða skerðingu bótaréttar.
Þú getur átt rétt á greiðslu dagpeninga vegna óvinnufærni og bótum vegna varanlegs miska. Sjúkratryggingar Íslands greiða þó ekki bætur vegna varanlegs miska nema hann sé metinn að lágmarki 10%.
Beri vinnuveitandi ábyrgð á slysinu, til dæmis vegna ófullnægjandi vinnuaðstæðna eða gáleysis annarra starfsmanna, kann jafnframt að stofnast skaðabótakrafa á hendur vinnuveitanda eða tryggingafélagi hans. Umferðarslys eru yfirleitt undanskilin.
Mikilvægt að tilkynna vinnuslys
Mikilvægt er að tilkynna vinnuslys sem fyrst til allra bótaskyldra aðila svo bótaréttur glatist ekki. Fortis getur farið yfir málið með þér, metið stöðuna og aðstoðað við að koma tilkynningum til réttra aðila.
Vinnuslys
51 árs / Úlnliðsbrot
Leitað til Fortis tveimur vikum eftir slysið. Fyrsta verkefni Fortis var að sjá til þess að vinnuveitandi tilkynnti slysið til réttra aðila. Fortis sá um öll samskipti við bótaskylda aðila, hlutaðist til um nauðsynlega gagnaöflun og sá til að útlagður sjúkrakostnaður yrði endurgreiddur. Ári eftir fyrsta viðtal lágu öll gögn fyrir og Fortis fékk hlutlausan matsmann til að meta afleiðingar slyssins.
Matsniðurstaða lá fyrir þremur vikum eftir matsfund: 15% læknisfræðileg örorka/varanlegur miski. Samanlagðar bætur frá tryggingafélagi vinnuveitanda og Sjúkratryggingum Íslands námu u.þ.b. 4.100.000 kr.
35 ára / Finguráverki
Leitað til Fortis nærri tveimur árum eftir slysið. Fortis sá um öll samskipti við bótaskylda aðila og hlutaðist til um nauðsynlega gagnaöflun. Þremur mánuðum eftir fyrsta viðtal lágu öll gögn fyrir og Fortis fékk hlutlausan matsmann til að meta afleiðingar slyssins.
Matsniðurstaða lá fyrir átta vikum eftir matsfund: 7% læknisfræðileg örorka/varanlegur miski. Bætur námu u.þ.b. 1.300.000 kr.
Við biðjum þig að hafa í huga að hvert mál er einstakt og það eru margar breytur sem hafa áhrif á bótafjárhæðina, t.d. sú trygging sem á í hlut, aldur og matsniðurstaða. Þegar um uppgjör á grundvelli skaðabótalaga er að ræða skipta meðaltekjur fyrir slys einnig máli.





