Sif lauk cand. juris prófi frá Háskóla Íslands árið 1990 og var gestastúdent við lagadeild Lunds Universitet í Svíþjóð sama ár. Hún hefur starfað við lögmennsku frá útskrift og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 1992. Sif hefur því áratugareynslu af lögfræðistörfum og lögmennsku.